Námskeið

Gæðakerfi iðnmeistara – virkniúttekt

Námskeiðið er ætlað iðnmeisturum, svo sem húsasmíðameisturum, pípulagningameisturum, múrarameisturum og málarameisturum, sem þegar hafa innleitt gæðakerfi eða hyggjast koma sér upp slíku kerfi.

Markmið námskeiðsins er að auka skilning þátttakenda á uppbyggingu, hlutverki og notkun gæðakerfa og á því hvernig virkniúttektir eru framkvæmdar.

Farið er yfir gæðakerfi sem sniðið er að þörfum iðnmeistara og helstu þætti í virkni þess. Einnig er gerð grein fyrir þeim kröfum sem gerðar eru við virkniúttektir á framkvæmdatíma og farið yfir framkvæmd þeirra úttekta sem Húsnæðis- og mannvirkjastofnun annast. Sérstök áhersla er lögð á hvaða atriði þurfa að vera í lagi þegar virkniúttekt fer fram.

Námskeiðsgögnin nýtast sem grunnur að uppbyggingu gæðakerfis.

Leiðbeinandi á námskeiðinu er Böðvar Ingi Guðbjartsson, byggingarstjóri og löggiltur pípulagningameistari, sem hefur sjálfur fengið eigin gæðakerfi tekin út í virkniúttektum.

Að lágmarki þurfa þrír iðnmeistarar eða fulltrúar þeirra að taka þátt.

Viltu fá námskeið eða aðstoð við gæðakerfi? Hafðu samband og fáðu nánari upplýsingar.

Hafa samband