28. maí 2025
Að hengja iðnmeistara fyrir lélega stjórnsýslu
Höfundur: Böðvar Ingi Guðbjartsson
Það er staðreynd að stór hluti þeirra sem starfa í byggingariðnaði hér á landi hefur ekki viðurkennda iðnmenntun.
Þann 22. maí sl. birtist grein í Morgunblaðinu með yfirskriftina „Að hengja útlendinga fyrir iðnmeistara“ þar sem Ferdinand Hansen gagnrýndi meðal annars sjónarmið sem ég hef sett fram um ábyrgð iðnmeistara í íslenskri mannvirkjagerð. Ferdinand fór hörðum orðum um mín sjónarmið og gaf í skyn að ég væri að kenna erlendu vinnuafli alfarið um vandann. Þetta er rangfærsla og einföldun á minni afstöðu.
Það er rétt að ábyrgð á gæðum byggingarframkvæmda hvílir fyrst og fremst á iðnmeisturum. Kerfið sem á að tryggja þessa ábyrgð hefur þó sýnt alvarlega galla. Það gengur einfaldlega ekki upp að þeir iðnmeistarar sem skila illa unnum verkum komist undan ábyrgð og neytendur sitji uppi með tjónið. Í dag þurfa neytendur sjálfir að taka af skarið, ráða lögfræðing og matsmann til að leita réttar síns; á meðan er iðnmeistarinn mættur í næsta verk. Þetta er bæði dýrt og tímafrekt ferli sem ætti að vera óþarft ef stofnanir eins og HMS og Neytendastofa sinntu lögboðnum skyldum sínum.
Það er staðreynd að stór hluti þeirra sem starfa í byggingariðnaði hér á landi hefur ekki viðurkennda iðnmenntun og kemur ekki úr því menntakerfi sem við höfum byggt upp á Íslandi og Norðurlöndunum. Við verðum að viðurkenna þessa staðreynd og takast á við hana af festu með því að gera auknar kröfur um menntun og verkkunnáttu allra sem koma að byggingarframkvæmdum hér á landi, óháð uppruna. Ef fyrstu viðbrögð felast alltaf í því að saka einstaklinga um einhvers konar andúð frekar en að horfast í augu við staðreyndir þá er voðinn vís.
Nýleg útgáfa Vegvísis HMS er skref í rétta átt en mun ekki leysa vandann ein og sér. Fyrst þarf að takast á við grundvallarorsakir þess að einstaklingar og fyrirtæki sem bera ábyrgð á gölluðum framkvæmdum komast undan afleiðingunum. HMS og fagfélögin þurfa að efla samstarf sitt til að tryggja að allar breytingar skili sér til iðnmeistara og bæta upplýsingaflæði svo ástandið batni varanlega.
Við eigum góða hefð fyrir fagmennsku í íslenskri mannvirkjagerð og getum verið stolt af henni. Talsmenn Samtaka iðnaðarins verða að horfast í augu við raunverulegar orsakir byggingargalla ef taka á samtökin alvarlega og hlusta á fagmenntað fólk með reynslu og þekkingu.
Með lögum skal land byggja og með fagmennsku tryggjum við gæði og traust. Nú er tími fyrir samstöðu innan íslensks iðnaðar svo við getum aftur farið að byggja vönduð hús eins og tíðkaðist hér áður fyrr.
